Haukar tryggðu sér oddaleik á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna með sigri á ÍBV, 26:23, í fjórðu viðureign liðanna í Kuehne+Nagel á Ásvöllum í dag. Hvort lið hefur unnið tvo leiki. Sæti í úrslitum Íslandsmótsins verður þar með undir er ÍBV og Haukar mætast í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 18.
Stóri munurinn á liðunum í leiknum í dag var frábær frammistaða Söru Sifjar Helgadóttur markvarðar Hauka. Hún átti sannkallaðan stórleik, varði 21 skot, þar af þrjú af fimm vítaköstum ÍBV-liðsins. Að fyrri hálfleik loknum var Sara Sif með hátt í 60% hlutfallsmarkvörslu. Síðasta vítakastið varði Sara Sif þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka og staðan var 24:21 fyrir Hauka. Þar með fór annað tækifæri ÍBV á að minnka muninn í tvö mörk og hleypa alvöru spennu í lokamínúturnar.
Haukar voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 11:10. Slen virtist yfir leikmönnum beggja liða í fyrri hálfleik. Gætti þar eflaust þreytu eftir tvíframlengdan leik í Eyjum á miðvikudaginn.
Heldur hresstist yfir leiknum, ekki síst Haukaliðinu í síðari hálfleik. Tólf mínútum fyrir leikslok náðu Haukar fimm marka forskoti, 21:16, eftir að hafa skorað sex mörk í röð án svars frá ÍBV. Þar með var ákveðinn grunnur að sigrinum lagður.
Mörk Hauka: Rakel Oddný Guðmundsdóttir 6, Inga Dís Jóhannsdóttir 5, Embla Steindórsdóttir 4, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4, Aníta Eik Jónsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 1/1, Sara Marie Odden 1, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 21/3, 48,8%.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 5, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3/3, Birna María Unnarsdóttir 2, Britney Emilie Florianne Cots 2, Ásdís Halla Hjarðar 1, Sandra Erlingsdóttir 1.
Varin skot: Amalia Froland 10, 35,7% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 3/1, 30%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



