- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Öruggur sigur hjá íslensku landsliðskonunum

- Auglýsing -

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe fór frábærlega af stað í undanúrslitum um þýska meistaratitilinn í handknattleik í dag með sex marka sigri á Thüringer HC, 31:25, á heimavelli. Blomberg-Lippe var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda, m.a. 13:10, þegar fyrri hálfleikur var að baki. Næst mætast liðin á heimavelli Thüringer HC sunnudaginn 3. maí. Vinna þarf tvo leiki til þess að leika til úrslita um meistaratitilinn gegn annaðhvort Borussia Dortmund eða HSG Bensheim/Auerbach.


Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst íslensku landsliðskvennanna þriggja hjá Blomberg-Lippe. Hún skoraði 3 mörk, gaf 5 stoðsendingar og var með 2 sköpuð færi.

Elín Rósa skoraði 2 mörk, gaf 1 stoðsendingu, fiskuð 2 víti, fiskaði einn andstæðing af leikvelli.

Andrea Jacobsen skoraði 1 mark, gaf 4 stoðsendingar, skapað 1 færi, fiskað 1 vítakast, var með 1 stolinn bolta og varði 3 skot í vörninni.

Spænska landsliðskonan Ona Vegue Pena var markahæst hjá Blomberg-Lippe með átta mörk. Þýska landsliðskonan Nieke Kühne var næst á eftir með sjö mörk.

Alfa Brá Oddsdóttir gengur til liðs við Thüringer HC fyrir næsta keppnistímabil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -