- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigurður hefur gengið til liðs við Hauka

- Auglýsing -

Haukar hafa gert samning við línumanninn sterka Sigurð Jefferson Guarino um að leika með liðinu næstu árin. Sigurður kemur til liðs við Hauka frá HK þar sem hann er uppalinn og hefur verið lykilmaður undanfarin ár. Sigurður hefur undanfarin ár átt sæti bandaríska landsliðinu og lék hann sína fyrstu landsleiki fyrir ári síðan.

Sterkur í vörn og sókn

Sigurður, sem verður 25 ára í desember, hefur undanfarin ár verið einn besti línumaður Olísdeildarinnar og á tímabilinu í ár skoraði hann 111 mörk. Einnig er Sigurður einn af betri varnarmönnum deildarinnar og er eini leikmaður deildarinnar í vetur sem skoraði yfir 100 mörk og náði 100 löglegum stöðvunum í vörninni.

Hefur skýr markmið

„Ég er með skýr markmið sem falla vel að hugmyndafræði og stefnu Hauka. Ég er spenntur fyrir því að takast á við nýjar áskoranir og hlakka til að vera hluti af liðinu og berjast með þeim næsta vetur,“ er haft eftir Sigurði í tilkynningu Hauka í morgun.

„Það er ánægjuefni að jafn sterkur leikmaður og Sigurður velji það að koma til Hauka til að taka næstu skref sín á ferlinum og mun koma hans hjálpa félaginu í þeim markmiðum um að keppast um alla þá titla sem í boði eru,“ segja Haukar í tilkynningu sinni.

Sá þriðji til að kveðja HK

Sigurður er annar leikmaður HK sem gengur til liðs við Hauka á nokkrum dögum. Hjörtur Ingi Halldórsson samdi við Hauka fyrir skömmu. Hann á reyndar rætur að rekja til félagsins á Ásvöllum.

Þriðji leikmaður HK á nýliðinni leiktíð, Haukur Ingi Hauksson, ákvað á dögunum að taka tilboði frá Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -