- Auglýsing -
Ísak Steinsson og liðsfélagar í Drammen unnu öruggan sigur á bikarmeisturum Runar, 34:25, í oddaleik liðanna í átta liða úrslitum norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Drammen-liðinu sem var þremur mörkum yfir í hálfleik, 18:15. Drammen mætir deildarmeisturum Elverum í undanúrslitum. Fyrsti leikur liðanna fer fram á laugardaginn.
Svo virðist, ef marka má tölfræði á heimasíðu norska handknattleikssambandsins, að Ísak hafi lítið komið við sögu í leiknum. Félagi Ísaks í markinu hjá Drammen, Oscar Larsen Syvertsen, virðist hafa náð sér vel á strik og varið 18 skot.
Í hinni viðureign undanúrslita eigast við Kolstad og Bergen.
- Auglýsing -



