SC Magdeburg færðist skrefi í dag nær þýska meistaratitlinum í handknattleik karla með baráttusigri á Stuttgart, 30: 26, í Porsche Arena í Stuttgart. Magdeburg hefur þar með sjö stiga forskot í efsta sæti deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
Leikmenn Magdeburg áttu í mestu vandræðum með leikmenn Stuttgart í dag. Það var ekki fyrr en leið á síðari hálfleik sem þeim tókst að hrista leikmenn Stuttgart af sér og vinna með fjögurra marka mun. Staðan í hálfleik var jöfn, 15:15.
Elvar Örn Jónsson var ekki í leikmannahópi Magdeburg í dag. Þar var hins vegar Gísli Þorgeir Kristjánsson. Hann skoraði fimm mörk og gaf tvær stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði eitt mark og geigaði í tveimur vítaköstum. Hann gaf eina stoðsendingu. Albin Lagergren var markahæstur hjá Magdeburg með sex mörk.
Lenny Rubin skoraði átta mörk fyrir Stuttgart-liðið og var markahæstur.
Fyrr í dag skildu Hannover-Burgdorf og Lemgo jöfn, 30: 30. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Staðan í þýsku 1. deildinni:



