- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þrír nýliðar í Kaíróhópnum – margir reyndir verða ekki með

- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið landsliðið sem mætir Afríkumeisturum Egyptalands í Kaíró 13. og 15. maí. Þrír nýliðar eru í hópnum; FH-ingarnir Jón Bjarni Ólafsson línumaður og markvörðurinn Jón Þórarinn Þorsteinsson. Þriðji nýliðinn er Tryggvi Þórisson línumaður Noregsmeistara Elverum Håndball.


Nokkrir reyndir leikmenn sem hafa verið burðarásar landsliðsins á undanförnum árum fara ekki með til Kaíró: Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals, Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leikmenn Magdeburg, Viggó Kristjánsson hjá HC Erlangen, Elliði Snær Viðarsson hjá Gummersbach, Ýmir Örn Gíslason fyrirliði Göppingen, og Janus Daði Smárason leikstjórnandi Pick Szeged.

Hópurinn kemur saman til æfinga í Egyptalandi mánudaginn 11. maí.

Markverðir:
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2).
Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0).
Ísak Steinsson, Drammen HK (3/0).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (118/123).
Bjarki Már Elísson, One Veszprem (137/445).
Einar Bragi Aðalsteinsson, IFK Kristianstad (2/0).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (36/8).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24).
Haukur Þrastarson, Rhein Neckar Löwen (58/80).
Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0).
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (37/72).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (43/151).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (69/215).
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (3/2).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (88/233).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (58/52).
Tryggvi Þórisson, Elverum Håndball (0/0).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (27/41).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -