MT Melsungen stendur vel að vígi eftir fimm marka sigur á FC Porto í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld, 28:23. Leikið var í Kassel í Þýskalandi. Síðari viðureign liðanna verður í Porto eftir viku. Samanlagður sigurvegari leikjanna tveggja tekur sæti í undanúrslitum.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur af mörkum MT Melsungen. Reynir Þór Stefánsson skoraði ekki mark. David Mandic var markahæstur með átta mörk. Nebojsa Simić átti stórleik í marki Melsungen og var með 38% markvörslu.
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði ekki mark fyrir Porto. Rui Silva var markahæstur með sex mörk.
Tvær viðureignir til viðbótar fóru fram í kvöld. Montpellier vann Vardar, 33:23, í Frakklandi og RK Nexe lagði THW Kiel, 33:30, í Króatíu.
Fjórða viðureign átta liða úrslita fer fram á morgun þegar þýsku liðin Flensburg og Hannover-Burgdorf mætast í Flensborg.



