- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahjónin leika áfram með HK

- Auglýsing -

Handboltahjónin Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Leó Snær Pétursson hafa endurnýjað samninga sína við handknattleiksdeild HK og munu þau þar með áfram miðla af reynslu sinni til leikmanna kvenna- og karlaliða félagsins í keppni Olísdeilda á næstu leiktíð.


Valgerður Ýr tók fram skóna á ný síðasta sumar eftir þriggja ára frí frá handbolta. Hún átti mjög stóran þátt í því að liðið tryggði sér sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili. Valgerður Ýr hefur spilað yfir 200 leiki með HK og er einn allra reynslumesti leikmaður liðsins.

Leó Snær lék upp yngri flokkana með HK og byrjaði meistaraflokksferilinn hjá félaginu. Hann og varð Íslandsmeistari með HK fyrir 14 árum. Síðan þá hefur hann spilað með HK, Malmö, Stjörnunni og Aftureldingu. Fyrir tveimur árum kom Leó Snær aftur heim í HK.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -