- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tvö dýrmæt stig hjá Blæ – skiptur hlutur í Gummersbach

- Auglýsing -

Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig unnu afar mikilvægan sigur í botnbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld er þeir lögðu lán- og Íslendingalaust lið Erlangen, 30:29, á heimavelli í 30. umferð deildarinnar. Með sigrinum færðist SC DHfK Leipzig upp í næst neðsta sæti deildarinnar úr botnsætinu sem liðið hefur vermt vikum og mánuðum saman. GWD Minden settist á botninn í staðinn en á leik inni á Leipzig eins og Wetzlar sem er í þriðja neðsta sæti með sama stigafjölda og Blær og félagar. Leiknar verða að vanda 34 umferðir í þýsku 1. deildinni.


Blær skoraði tvö mörk fyrir Leipzig-liðið. Dean Bombač var markahæstur með átta mörk.

Marek Nissen skoraði 11 mörk fyrir Erlangen-liðið sem sótti hressilega í sig veðrið undir lokin sem nægði ekki til að jafna metin. Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson léku ekki með Erlangen vegna meiðsla sem hrjá þá.

Kaflaskipt í Gummersbach

Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson skoruðu tvö mörk hvor í jafntefli Gummersbach á heimavelli, 29:29, gegn Frish Auf! Göppingen.

Gummersbach var sjö mörkum undir í hálfleik, 19:12, sem er harla óvenjulegt hjá liðinu, ekki síst þegar leikið er á heimavelli. Leikmenn liðsins sóttu hressilega í sig veðrið í síðari hálfleik eftir að Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari hafði messað yfir þeim.

Miro Schluroff skoraði níu mörk og Milos Vujovic átta fyrir Gummersbach.

Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Göppingen. Hann mun vera meiddur í hné.

Erik Persson var markahæstur hjá Göppingen með sex mörk.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -