- Auglýsing -
Valsmaðurinn Magnús Óli Magnússon var borinn af leikvelli seint í fyrri hálfleik þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í N1-höllinni. Magnús Óli fékk þungt högg þegar höfuð hans small í öxlinni á Ingvari Degi Gunnarssyni varnarmanni FH og lá eftir.
Sjúkraþjálfari Vals skoðaði Magnús Óla og óskaði síðan eftir sjúkrabörnum til þess að bera hann af leikvelli til ítarlegrar skoðunar.
Uppfært: Í lýsingu Símans frá leiknum kom fram að Magnús Óli hafi verið fluttur á sjúkrahús til skoðunar hjá lækni.
Handbolti.is sendir Magnúsi Óla batakveðjur.
- Auglýsing -


