- Auglýsing -
Elín Klara Þorkelsdóttir lék við hvern sinn fingur í kvöld í öðrum sigri IK Sävehof á Höörs HK H 65 í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 31:28. Leikið var í Höör. Elín Klara skoraði átta mörk í níu skorum og gaf þrjár stoðsendingar. Einnig átti hún þrjár stoðsendingar.
IK Sävehof hefur þar með náð í tvo vinninga og vantar einn í viðbót til þess að vinna rimmuna. Höör-verjar eru án vinnings.
Næsta viðureign liðanna fer fram í Partilla á miðvikudaginn eftir viku.
- Auglýsing -



