Íslendingaliðið Kolstad tapaði á heimavelli fyrir Bergen Håndball í fyrstu umferð undanúrslita úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í gær, 33:30. Víst er að leikmenn Kolstad verða að bíta í skjaldarrendur fyrir næstu viðureign í Björgvin á þriðjudaginn því aðeins þarf að vinna tvo leiki til þess að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum um sigurlaunin í úrslitakeppninni.
Markvörður Bergen-liðsins og nafni leikskáldsins og Nóbelsverðlunahafans Henrik Ibsen, reyndist leikmönnum Kolstad erfiður. Ibsen, sem er 18 ára, var með 40% hlutfallsmarkvörslu þegar upp var staðið, sé eitthvað mark takandi á tölfræði leiksins á heimasíðu norska handknattleikssambandsins.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad, eitt þeirra úr vítakasti. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk. Benedikt Gunnar gaf 14 stoðsendingar.
Sigurjón Guðmundsson markvörður varði sex skot í marki Kolstad en aftur er settur fyrirvari á tölfræði leiksins vegna þess að fyrir hefur komið í vetur að lítill fótur hefur reynst fyrir að hún sé rétt. Ljóst er að eitthvað er bogið við tölfræði vegna þess að útileikmaður Kolstad, Magnus Gullerud, virðist hafa staðið í marki liðsins um skeið, reyndar án þess að verja skot. Alltént virðist Gullerud hafa borið kápuna á báðum öxlum því hann skoraði einnig þrjú mörk.



