- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Magnús Óli fékk heilahristing

- Auglýsing -

Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals fékk heilahristing í þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í gærkvöld. Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals staðfestir tíðindin í viðtali við Vísi í dag. Magnús Óli varð fyrir þungu höfuðhöggi síðla í síðari hálfleik viðureignarinnar er höfuð hans small í öxl Ingvars Dags Gunnarssonar varnarmanns FH.


Magnús Óli var borinn af leikvelli og vitanlega fluttur undir læknishendur. Vísir hefur eftir Ágústi Þór að Magnús Óli hafi verið á sjúkrahúsi fram á nótt. Ágúst Þór heyrði í lærisveini sínum fyrir hádegið.

Eins og gefur að skilja eftir svo þungt höfuðhögg og heilahristing þá leikur Magnús Óli ekki fleiri leiki með Val á leiktíðinni.

Magnús Óli borinn af leikvelli

Einn eða tveir leikir eru eftir hjá Valsmönnum en þeir hafa tvo vinninga gegn einum í einvíginu við FH um Íslandsmeistaratitilinn. Liðið sem fyrr hlýtur þrjá vinninga verður Íslandsmeistari. Næsti leikur FH og Vals fer fram í Kaplakrika á mánudaginn og hefst klukkan 19.30. Komi til oddaleiks verður hann á fimmtudagskvöld á Hlíðarenda. Einnig þá hefur verið ákveðið að hefja leik klukkan 19.30.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -