- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Matthías Ingi flytur vestur á Nes

- Auglýsing -

Matthías Ingi Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann kemur til félagsins frá ÍR.

Matthías Ingi fæddist fyrir 20 árum og steig sín fyrstu handboltaskref hjá Fylki og lék síðar með Fjölni/Fylki þar til hann skipti yfir í Val. Frá Val hélt Matthías Ingi til ÍR síðasta sumar en tókst ekki að skjóta rótum og var lánsmaður hjá Val U síðari hluta þeirrar leiktíðar sem nú er að renna sitt skeið á enda.


„Matti er snöggur og áræðinn leikmaður sem býr yfir hraða sem hentar leikstíl Gróttuliðsins vel. Það verður gaman að vinna með honum næstu árin,“ er haft eftir Andra Sigfússyni, nýráðnum þjálfara karlaliðs Gróttu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -