- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Rúnar og liðsmenn skelltu Kiel – heimasigur hjá Bergischer

- Auglýsing -

Rúnar Sigtryggsson stýrði HSG Wetzlar til sigurs annan leikinn í röð í gær er liðið lagði THW Kiel, 33:25, á heimavelli. Með sigrinum halda Rúnar og liðsmenn áfram að troða marvaðann á leið sinni til björgunar frá falli úr þýsku 1. deildinni. Liðið er sem fyrr í 16. sæti af 18 með 15 stig þegar fjórar umferðir eru eftir. GWD Minden er stigi á eftir í næst neðsta sæti og Leipzig rekur lestina tveimur stigum færra en HSG Wetzlar.

Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar ásamt öðrum situr í 15. sæti, tveimur stigum á undan HSG Wetzlar. Leikmenn Bergischer gátu einnig glaðst á leikslokum í gær því þeim tókst að vinna Hannover-Burgdorf á heimavelli, 30:29. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgorf en liðið situr í 11. sæti með stigin sín 25.


Wetzlar-liðið var með yfirhöndina í leiknum við Kiel frá upphafi til enda, Til að mynda var staðan 10:3 eftir stundarfjórðung. M.a. var fimm marka munur að loknum fyrri hálfleik, 16:11. Markverðirnir Andreas Palicka og Anadin Suljakovic stóðu svo sannarlega fyrir sínu. Það munaði svo sannarlega um minna að á sama tíma Gonzalo Perez de Vargas og Andreas Wolff markverðir THW Kiel náðu sér ekki á strik.

Tristan Kirschner var markahæstur hjá Wetzlar með átta mörk en Rasmus Ankermann skoraði sex mörk fyrir Kiel og var markahæstur.

Flest hefur gengið THW Kiel í mót síðustu vikur. Sökum þess er aftur farið að hitna undir Filip Jicha þjálfara liðsins.

Skoraði þriðjung markanna

Sören Steinhaus skoraði þriðjung marka Bergischer HC í sigurleiknum á Hannover-Burgdorf, 30:29. Samherji hans, Noah Beyer, skoraði átta mörk.

Jonathan Edvardsson skoraði sex mörk fyrir Hannover-Burgdorf.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -