- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð

- Auglýsing -

Orri Freyr Þorkelsson varð í gærkvöld portúgalskur meistari þriðja árið í röð með Sporting Lissabon. Liðið innsiglaði meistaratitilinn með sjö marka sigri á FC Porto á heimavelli, 36:29. Enn þá eru tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Yfirburðir Sporting hafa verið slíkir í vetur að úrslit síðustu leikjanna breyta engu um niðurstöðu deildarkeppninnar. Sporting hefur unnið alla 26 leiki sína fram til þessa.

Orri Freyr skoraði fimm mörk í sigurleiknum í gærkvöld. Francisco Costa var markahæstur hjá Sporting með 11 mörk.

Campeonato Placard Andebol 1: Sporting CP sagra-se Tricampeão Nacional


Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Porto og var einnig vikið tvisvar sinnum af leikvelli.

FC Porto og Benfica berjast um annað sæti deildarinnar. Aðeins munar einu stigi á liðunum fyrir síðustu leikina. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica í gær í öruggum sigri á Águas Santas, 31:25, á útivelli.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -