Ísak Steinsson og samherjar í Drammen HK unnu Elverum í tvíframlengdum háspennuleik, 36:35, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Elverum. Sondre Skovli skoraði sigurmarkið síðla í síðari framlengingunni eftir nærri 80 mínútna leik. Næsti leikur liðanna fer fram í Drammen á miðvikudaginn og vinni heimaliðið leikur það til úrslita.
Drammen-liðið kom liðsmönnum Elverum í opna skjöldu í fyrri hálfleik, ekki síst með frábærum varnarleik sem sló heimamenn út af laginu. Staðan var 16:10 í hálfleik. Elverum tókst að snúa viðureigninni sér í hag í síðari hálfleik og Kevin Gulliksen skoraði jöfnunarmarkið í venjulegum leiktíma, 26:26, skömmu fyrir leikslok. Eftir það tók við ævintýrlega spennandi framlenging. Í henni var jafnt á öllum tölum þar til í lokin.
Því miður virðist tölfræði leiksins á heimasíðu norska handknattleikssambandsins vera ábótavant. Ekki liggur ljóst þar fyrir hversu mikinn þátt Ísak Steinsson markvörður tók í leiknum.



