- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sjö mörk hjá Donna þegar Skanderborg gulltryggði sæti í undanúrslitum

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF gulltryggðu sæti í undanúrslitum úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á Bjerringbro/Silkeborg, 35:28, í næst síðustu umferð B-riðils átta liða úrslita. Leikið var á heimavelli Skanderborg-liðsins.


Donni skoraði sjö mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann var næst markahæsti leikmaður Skanderborgarliðsins.

Skanderborg AGF mun að öllum líkindum mæta GOG í undanúrslitum. Alltént er ljóst að GOG mun hafna í öðru sæti A-riðils hver sem úrslit verða í lokaumferðinni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -