Í tvíframlengdum háspennuleik FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla réðust úrslitin á dramatíkskum síðustu sekúndum. Fyrir mörgum virtist Valur hafa jafnað metin þegar 10 sekúndur voru til leiksloka þegar Daníel Montoro kom boltanum á ævintýralegan hátt fram hjá nafna sínum Daníel Frey Andréssyni markverði FH. Eftir vandlega skoðun dómara leiksins, Antons Gylfa Pálssonar og Jónasar Elíssonar var niðurstaða þeirra að dæma Val vítakast.
Vítakastið sem Arnór Snær Óskarsson tók varði Daníel Freyr og sá til þess að FH vann með eins marks mun, 37:36.
Hér fyrir neðan er myndskeið frá Handboltahöllinni sem sýnir hraðaupphlaup Vals og dramatíkina sem tók við. Var þetta gott og gilt mark eða ekki?


