- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram er mikið tap á rekstri HSÍ – stjórn hefur „verulegar áhyggjur“

- Auglýsing -

Handknattleikssamband Íslands var rekið með 22 milljóna króna tapi árið 2025 og hefur þar með verið rekið með á annað hundrað milljóna kr. tapi síðustu þrjú ár. Í greinargerð með ársreikningi HSÍ 2025 segir að „skuldir sambandsins nema í árslok 145 millj. kr. og eru þær allar til skamms tíma eða til greiðslu innan næstu 12 mánaða.“ M.a. hefur verið fundað með mennta- og barnamálaráðherra vegna stöðunnar.

Ársþing HSÍ verður á föstudaginn.

Meira tap á árinu 2026

Ljóst er að staða sambandsins er alvarleg enda kemur fram í fyrrgreindri greinargerð að stjórn HSÍ hafi „verulegar áhyggjur“. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 sem lögð hefur verið fram er að óbreyttum rekstri gert ráð fyrir 33 milljóna kr. tapi. Verði bætt við B- og C-landsliðunum mun tapið liðlega tvöfaldast.

Vonir bundnar við þjóðarátak

Enn fremur segir í greinargerðinni að áhersla sé lögð á að endursemja við núverandi samstarfsaðila auk þess sem lögð sé áhersla á að laða að fleiri fyrirtæki til samstarfs. Einnig er vonast til að þjóðarátak skili 25 millj. kr. Þess má geta að þjóðarátak síðasta árs skilaði liðlega 14 millj. kr.

Til viðbótar hefur verið fundað með mennta- og barnamálaráðherra og spilin lögð á borðið. Enn sem komið er hefur HSÍ farið bónleið til búðar hjá ráðherra.

Tekjur hækkuðu um 13%

Heildartekjur HSÍ árið 2025 námu 539 millj. kr. og hækkuðu um 13% á milli ára eða um 64 millj. kr. Hækkunin skýrist að mestu leyti af afreksstyrkjum frá ÍSÍ en þeir hækkuðu um tæpar 42 millj. kr. frá 2024. Öll landslið sambandsins, hvort sem um ræðir A-landslið eða yngri landslið, komust inn á stórmót í sínum aldursflokkum.

Útgjöld hækkuðu 17 milljónum meira en tekjur

Rekstrargjöld ársins námu 556 millj. kr. eða 17 millj. kr. meira en tekjurnar. Þar er langstærsti útgjaldaliður sambandsins rekstur landsliða. Kostnaður við landslið Íslands á árinu 2025 nam 323 millj. kr. og hækkar um 38 millj. kr. á milli ára. Helstu skýringar á hækkuninni eru hækkun á flugi og gistingu auk þess sem samið var við faglegan ráðgjafa á afrekssviði sambandsins.

Stjórn HSÍ telur að ekki sé unnt að skera niður í rekstri sambandsins nema að það komi verulega niður á samkeppnishæfni landsliðanna.

„Styrkir frá öðrum samstarfsaðilum hækka lítillega á milli ára eða um 4 millj. kr. Tekjur af landsliðum aukast um 9 millj. kr. en auglýsingatekjur skýra þá hækkun en þær hafa hækkað um 21 millj. kr. Á móti lækkuðu tekjur vegna aðgangseyris á milli ára en fáir landsleikir voru haldnir á Íslandi á árinu 2025. Einnig lækkuðu lottótekjur um tæpar 5 millj. kr. á milli ára eða um 13%,“ segir í áðurnefndri greinargerð sem fylgir ársreikningi.

Tekjur HSÍ af mótahaldi jukust um 13 millj. kr. á síðasta ári. Helsta skýringin er sú að HSÍ TV (Handboltapassinn) skilaði hagnaði í fyrsta sinn, reyndar án tillits til afskrifta.

Gögn tengd ársþingi HSÍ 2026 er að finna hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -