Valur er kominn í væna stöðu eftir að hafa lagt ÍBV öðru sinni í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 25:23. Þar með vantar Valsliðið aðeins einn vinning í viðbót til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð. Þriðja viðureign liðanna fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 17. Vinni Valsliðið þá viðureign fer Íslandsbikarinn á loft í leikslok.
Valur var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13. Liðið var með forskot frá upphafi til loka leiksins. Níu tíu sekúndum fyrir leikslok átti ÍBV þess kost að minnka muninn í eitt mark en besti leikmaður vallarins, Hafdís Renötudóttir markvörður Vals, sá til þess að svo yrði ekki. Þar með fór síðasta von ÍBV um að hleypa leiknum í uppnám. Í næstu sókn skoraði Lovísa Thompson 25. mark Vals, 25:22, og mínúta til leiksloka.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 7, Sandra Erlingsdóttir 5/3, Britney Emilie Florianne Cots 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 1, Ásta Björt Júlíusdóttir 1/1.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 15, 38,5%.
Mörk Vals: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 7, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 4/3, Elísa Elíasdóttir 4, Lovísa Thompson 4, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Auður Ester Gestsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 17, 43,6% – Elísabet Millý Elíasardóttir 1/1, 50%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



