Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson verða fulltrúar Íslands í undanúrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik í Hamborg 30. og 31. maí eftir að lið þeirra MT Melsungen tryggði sér sæti í úrslitahelgi keppninnar í kvöld. Þrátt fyrir fjögurra marka tap, 23:19, í Porto slapp MT Melsungen fyrir horn, þökk sé fimm marka sigri á heimavelli í Kassel fyrir viku.
Arnar Freyr skoraði eitt mark í leiknum í kvöld. Reynir Þór Stefánsson komst ekki á blað.
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir FC Porto. Rui Silva og Antonio Martinez voru markahæstir með fjögur mörk hvor.
Florian Drosten var atkvæðamestur sóknarmanna Melsungen með sjö mörk.
Þrjú þýsk lið taka þátt í úrslitahelgi Evrópudeildar. Auk Melsungen komust Flensburg og THW Kiel áfram. Fjórða liðið í undanúrslitum verður Montpellier.
Flensburg vann Hannover-Burgdorf í Hannover, 43:35, en jafntefli var í fyrri leiknum. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
THW Kiel rétt slapp áfram með sigri í vítakeppni við RK Nexe á heimavelli. Jafnt var eftir tvo leiki, 60:60. Þar með voru úrslitin útkljáð í vítakeppni sem Kiel vann, 4:2.
Montpellier tapaði fyrir Vardar í Skopje í kvöld, 27:24. Það kom ekki að sök því franska liðið vann fyrri leikinn fyrir viku í Frakklandi, 33:23.
Valentin Porte leikmaður Montpellier var nefbrotinn í leiknum.

Flensburg vann Evrópudeildina á síðasta ári.



