Barcelona komst í kvöld í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Þar með er ljóst að Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður tekur í fyrsta sinn þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar í Köln 13. og 14. júní. Barcelona vann stórsigur á Nantes, 31:21, í síðari viðureign liðanna í Barcelona.
Á sama tíma féllu Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting Lissabon úr leik eftir eins marks tap fyrir danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold, 37:36, í síðari viðureign liðanna í átta liða úrslitum. Leikið var í Álaborg. Jafntefli var í fyrri viðureign liðanna, 31:31, í Lissabon fyrir viku.
Orri Freyr skoraði eitt mark í hnífjöfnum leik í Álaborg. Francisco Costa var markahæstur með 13 mörk. Bróðir hans Martím skoraði átta mörk.

Thomas Arnoldsen skoraði 10 mörk fyrir Álaborgarliðið sem er komið í þriðja sinn í undanúrslit Meistaradeildar. Liðið lék til úrslita 2024 síðast er það náði svo langt í keppninni. Sporting hefur aldrei náð lengra en inn í átta liða úrslit.
Aldrei vafi í Barcelona
Viktor Gísli lék aðeins síðustu mínútur leiksins í marki Barcelona í sigurleiknum á Nantes, 31:21. Hann varði eitt skot. Emil Nielsen átti stórleik og var með 44% hlutfallsmarkvörslu.
Aleix Abello skoraði 10 mörk fyrir Barcelona og Dika Mem fjögur.
Thibaud Briet var markahæstur hjá Nantes með fimm mörk.
Síðasti leikurinn annað kvöld
Síðasta viðureign átta liða úrslita fer fram annað kvöld þegar Pick Szeged sækir Evrópumeistara SC Magdeburg heim. Magdeburg vann fyrri viðureignina í Ungverjalandi með sjö marka mun.



