- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tvö sigursælstu liðin mætast í úrslitaleik Íslandsmótsins

- Auglýsing -

Valur og FH, tvö sigursælustu lið í sögu Íslandsmóts karla í handknattleik, mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í N1-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.30 í kvöld. Eftir fjóra hörkuleiki þá hefur hvort lið unnið tvær viðureignir.

Gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum. Aðgöngumiðar seldust upp á rúmlega klukkustund á þriðjudaginn. Reikna má með að hátt í 2.000 áhorfendur mæti á Hlíðarenda. Þar af leiðandi er rétt að undirstrika að áhorfendur mæti tímanlega til að forðast raðir.

Úrslitaleikurinn verður sendur út í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans.

Valur og FH eru tvö sigursælustu félög Íslandsmóts karla í handknattleik. Valsmenn hafa hampað Íslandsbikarnum oftar en aðrir eða í 24 skipti. Valur vann Íslandsmeistaratitilinn síðast árið 2022. FH er næst á eftir með 17 Íslandsmeistaratitla, síðast 2024.

Síðasta viðureign liðanna sem fór fram í Kaplakrika á mánudaginn varð að tvíframlengja til þess að kalla fram sigur á annan hvorn veginn. FH vann með eins marks mun, 37: 36. Daníel Freyr Andrésson markvörður FH varði vítakast Arnórs Snæs Óskarssonar þegar nokkrar sekúndur voru eftir af 80 mínútna kappleik.

Tveir að hætta?

Töluverðar líkur eru á að a.m.k. tveir leikmenn leggi skóna á hilluna eftir leikinn. Valsarinn Róbert Aron Hostert og FH-ingurinn Ágúst Birgisson segja í viðtali við Morgunblaðið í dag að meiri líkur en minni séu fyrir að þeir kveðji handboltasviðið með leiknum í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -