- Auglýsing -
Línumaðurinn Jón Ómar Gíslason og handknattleiksdeild Hauka hafa náð samkomulagi um að ljúka samstarfi.
Jón Ómar varð bikarmeistari með Haukum í vetur sem leið. Skoraði hann m.a. úrslitamarkið í vítakeppni liðsins í leik gegn Val í 16-liða úrslitum.
„Haukar þakka Jóni Ómari fyrir sitt framlag til félagsins og óska honum velfarnaðar í framhaldinu á sínum handknattleiksferli. Takk, Jón Ómar!“ segir í tilkynningu Hauka í morgun.
- Auglýsing -


