Evrópumeistarar Magdeburg komust örugglega áfram í undanúrslit Meistaradeildar eftir annan öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 45:37, í síðasta leik átta liða úrslita í keppnishöllinni í Magdeburg í kvöld. Magdeburg vann samanlagt með 15 marka mun, 80:65.
Í gærkvöld komust Barcelona, Füchse Berlin og Aalborg Håndbold áfram og þar með verða þrjú af fjórum liðum undanúrslita á síðasta ári þátttakendur í úrslitahelgi Meistaradeildar 13. og 14. júní í Lanxess Arena í Köln.
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg í kvöld með átta mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og Elvar Örn Jónsson tvö. Gísli Þorgeir átti fimm stoðsendingar en þeir Ómar og Elvar eina hvor.

Janus Daði Smárason var markahæstur hjá Pick Szeged á sínum gamla heimavelli með sjö mörk. Þar að auki gaf Janus Daði sex stoðsendingar.


