Valur er Íslandsmeistari í handknattleik karla í 25. sinn. Valur vann FH í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld í æsispennandi leik, 27:26, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12.
Daníel Freyr Andrésson markvörður FH kastaði líflínu til samherja sinna þegar hann varði vítakast Arnórs Snæs Óskarssonar 33 sekúndum fyrir leikslok. Í framhaldinu átti FH síðustu sókn leiksins sem stóð yfir í 25 sekúndur. Þeir komu ekki skoti á mark Vals til þess að jafna metin og krækja þar með í framlengingu.
Stórkostleg stemning var í smekkfullri keppnishöll á Hlíðarenda en hátt í 2.000 áhorfendur tóku þátt í leiknum af lífi og sál.
Valur lék fyrstu 20 mínútur fyrri hálfleiks hreint frábærlega, ekki síst í vörninni því FH-liðið átti engin svör. Þegar Sigursteinn Arndal þjálfari FH tók leikhlé að loknum nærri 22 mínútum blés ekki byrlega, Valur var sex mörkum yfir, 13:7. Valsliðinu tókst ekki að halda út til loka hálfleiksins
Sóknarleikurinn hikstaði og FH gekk á lagið síðustu mínútuna vera manni fleiri. Það var því vel sloppið hjá FH að vera aðeins fjórum mörkum undir í hálfleik, 16:12. FH átti svo sannarlega von þegar gengið var inn í hálfleikinn, óneitanlega betri von en tíu mínútum fyrr.
Með yfirvegaðri sóknarleik hefði Valur getað verið með mun meira forskot í hálfleik.
FH-ingar fylgdu góðum lokakafla í fyrri hálfleik eftir með því að skora þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks og minnka muninn í eitt mark, 16:15, eftir fjórar mínútur. Skyndilega var leikurinn stál í stál.
Ómar Darri Sigurgeirsson jafnaði metin, 19:19, þegar leiktími síðari hálfleiks var hálfnaður. Í kjölfarið gat Kristófer Máni Jónasson komið FH yfir í fyrsta sinn í leiknum en skot hans eftir hraðaupphlaup hafnaði í stöng Valsmarksins.
Valsmenn létu frumkvæðið ekki af hendi þótt FH-ingar sæktu hart að þeim allt til leiksloka. Frábæru úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla lauk í frábærri umgjörð í N1-höllinni.
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 9/5, Magnús Óli Magnússon 4, Bjarni í Selvindi 4, Andri Finnsson 3, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 3, Allan Norðberg 2, Gunnar Róbertsson 2.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8, 23,5%.
Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 9, Jón Bjarni Ólafsson 4, Garðar Ingi Sindrason 3 (10 sköpuð færi), Birgir Már Birgisson 3, Kristófer Máni Jónasson 2, Jakob Martin Ásgeirsson 2, Símon Michael Guðjónsson 2, Birkir Benediktsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 10/1, 38,5% – Daníel Freyr Andrésson 3/1, 33,3%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



