- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fer til Tenerife eftir helgi og spila golf

- Auglýsing -

„Þetta er bara frábært,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals eftir að hann stýrði liði sínu til sigurs á FH í stórskemmtilegum oddaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í N1-höllinni í kvöld, 27:26. Ágúst Þór varð þar með Íslandsmeistari í fyrsta sinn í meistaraflokki karla sem þjálfari en hann hefur áður verið afar sigursæll með kvennalið félagsins í nærri áratug á undan.

„Við vorum mjög orkumiklir í leiknum í kvöld. Upphafið var frábært, við vorum mjög agressívir varnarlega og tókst þar með að stöðva flæði í sóknarleik FH. Við mættum Ómari Darra mjög vel og náðum síðan að keyra mjög vel á þá í sóknarleik okkar. Hungrið til að vinna titilinn var fyrir hendi frá upphafi til enda,“ sagði Ágúst Þór sem var skiljanlega hress og kátur með gullverðlaunapeninginn um hálsinn.

Tókst að komast aftan að okkur

Valur náði mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik áður en FH náði að skora fimm mörk í röð undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi þessa með þeim afleiðingum að forskot Vals fór niður í eitt mark. Ágúst sagði margt hafa spilað inn í þeim kafla; mark hafi verið dæmt af Val auk þess sem nokkrar brottvísanir settu strik í reikninginn. „FH tókst að komast aftan að okkur á þessum kafla og náðu meðal annars að leysa yfirtölu sína vel á meðan við fengum mun fleiri brottvísanir.

Í lokin var járn í járn. Strákarnir mínir sýndu góðan aga og leik sinn sem skilaði sér í sigri,“ sagði Ágúst sem mat það sem svo að Valur hafi lengst af verið skrefinu á undan. Mér leið þannig í leiknum þótt sannarlega hafi ég verið stressaður á lokakaflanum.“

Frábær leikmannahópur og þjálfarateymi

Ágúst Þór hefur nú unnið deildarmeistaratitilinn og nú Íslandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta ári með karlalið Vals. Hann segir það kannski ekki framar vonum. „Ég vissi það fyrir tímabilið að ég væri með frábært lið í höndunum auk þess að hafa framúrskarandi þjálfarateymi með mér sem hefur unnið frábært starf ásamt strákunum sem hafa æft mjög vel.

Ofan á þetta bættis Arnór Snæ við hópinn á miðju tímabili. Hann var mikil búbót en á móti kemur að Máni fór í FH og Viktor í Fram.

Þar á ofan stigu ungir strákar sín fyrstu skref í vetur og stóðu þeir sig afar vel. Ég nefni sem dæmi Dag Leó Fannarsson sem hefur verið frábær í vörninni. Það sjá ekki allir hversu mikill vinnu hann skilar. Hann mun stíga næstu skref á inn í sóknarleikinn á næstu leiktíð. Annar ungur leikmaður er Gunnar Róbertsson sem hefur verið stórkostlegur. Hann hefur ekki fengið allt það hrós sem hann á skilið. Það er eins og menn haldi að Gunnar sé þrjátíu ára en staðreyndin er sú að hann er aðeins sautján ára. Daníel Montoro er þriðji ungi strákurinn sem hefur tekið stórstígum framförum og leikið frábærlega vel. Andri Finnsson hefur leikið mjög vel í vinstra horninu eftir að hafa verið færður af línunni.

Ekkert nýtt – alltaf pressa á kallinum

Til viðbótar eru margir reyndir leikmenn sem leikið hafa vel og kunna þá list að vinna. Ég hef verið góða liðsheild sem á eftir að standa sig vel á næsta keppnistímabili,“ segir Ágúst Þór sem reiknar með að áfram verði pressa á þjálfaranum á næsta keppnistímabili.

„Það er ekkert nýtt, pressan er alltaf á kallinum. Ég reikna með að ég panti mér ferð til Tenerife á mánudaginn og spili golf í nokkra daga áður en ég fer að setja saman lið fyrir næsta tímabil,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals léttur í bragði að vanda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -