Arnór Snær Óskarsson leikmaður Íslandsmeistara Vals var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar karla eftir að lið hans vann Íslandsmeistaratitilinn í gær eftir sigur á FH í oddaleik. Arnór Snær gekk á ný til liðs við Val eftir tveggja og hálfs árs veru í Þýskalandi og Noregi. Hann hefur farið á kostum með Valsliðinu síðustu vikur og mánuði og var vel að því kominn að hreppa hnossið, leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar karla 2026.
Bara ekki vera lélegur
„Ég kom heim til Íslands með það eitt markmið að spila handbolta. Ekki varð það verra að geta gert það með uppeldisfélaginu og vinna Íslandsmeistaratitilinn og deildarmeistaratitilinn í frábærum hópi, blöndu af yngri og efnilegri leikmönnum og eldri og reyndari,“ sagði Arnór Snær er handbolti.is hitti hann stuttlega að máli eftir að Íslandsbikarinn fór á loft á fjölum N1-hallarinnar á Hlíðarenda í gærkvöld.
„Ég ætlaði mér að spila almennilega hér heima, skora 10 mörk í leik. Bara ekki vera lélegur,“ sagði Arnór Snær sem varð Íslandsmeistari í þriðja sinn með Val í gær.
Fyrsta sinn á heimavelli
„Ég hef ekki áður unnið titilinn á Hlíðarenda. Í tvö fyrri skiptin fögnuðum við á Ásvöllum [2021] og í Eyjum [2022]. Ætli það hafi ekki verið í undirmeðvitundinni þegar ég klúðraði vítakastinu í Kaplakrika á mánudaginn og vilja vinna titilinn á heimavelli,“ sagði Arnór Snær léttur í bragði og bætti við: „Nei, ég segi svona.“
Stekkur ekki á hvað sem er
Spurður hvort hann stefndi á að fara út til Evrópu til handknattleiks strax í sumar svaraði Arnór Snær að óvissa ríkti. „Ég stefni á að fara út aftur en ég ætla ekki að stökkva á hvað sem er. Ef eitthvað gott kemur inn á borðið hjá mér þá skoða ég það vel. Annars verð ég áfram með Val. Framtíðin er óskrifað blað,“ sagði Arnór Snær Óskarsson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar karla 2026.



