- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Unnu þriðju viðureignina í röð og leika um meistaratitilinn

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson og samherjar hjá IFK Kristianstad leika til úrslita um sænska meistaratitilinn í handknattleik eftir þriðja sigurinn í röð á Alingsås í undanúrslitum í Kristianstad Arena í kvöld, 32:27. Magnaður viðsnúningur var í rimmu liðanna. Alingsås vann tvo fyrstu leikina áður en deildarmeistarar IFK Kristianstad hrukku í gang og unnu þrjár næstu viðureignir. Fjórði leikurinn sem fram fór í Alingsås fyrir tveimur sólarhringum var framlengdur áður en hrein niðurstaða fékkst.

Skoraði fjögur mörk

Einar Bragi skoraði fjögur mörk í viðureigninni í kvöld. Axel Månsson var markahæstur með fimm mörk. IFK Kristianstad var marki yfir í hálfleik en tókst að herða tökin á viðureigninni í síðari hálfleik.

Tvö efstu liðin mætast í úrslitum

Tvö efstu lið sænsku úrvalsdeildarinnar, IFK Kristianstad og Malmö, bítast um sænska meistaratitilinn. Fyrsti leikur liðanna verður ekki fyrr en í annarri viku héðan í frá vegna þess að næsta vika er frátekin fyrir landslið sem ýmist taka þátt í umspili um sæti á HM eða leika vináttulandsleiki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -