- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Breyting á úrslitakeppni úrvalsdeildar – danska mótelið tekið upp

- Auglýsing -

Breyting verður gerð á úrslitakeppni úrvalsdeildar karla á næsta keppnistímabili. Felur hún í sér að tekið verður upp sama fyrirkomulag úrslitakeppni og tíðkast í Danmörku. Liðunum sem hafna í átta efstu sætum úrvalsdeildar karla verður skipt niður í tvo fjögurra liða riðla. Leikin verður tvöföld umferð í hvorum riðli. Hvert lið fær þar með þrjá heimaleiki.

Liðin sem hafna í 1. og 2. sæti eftir deildarkeppnina hefja riðlakeppnina með tvö stig. 3. og 4. sæti með eitt stig. Liðin í 5.–8. sæti byrja með núll stig, eins og í dönsku úrvalsdeildinni.


Að riðlakeppni lokinni mætir efsta liðið í riðli eitt því sem hafnar í öðru sæti í riðli tvö og efsta lið riðla tvö leikur við liðið sem hreppir annað sæti í riðli eitt.

Þau lið sem fyrst vinna tvo leiki í undanúrslitum leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Það lið sem vinnur þrjá leiki í þeirri viðureign verður Íslandsmeistari.

Liðið sem var ofar í deildarkeppninni fær ávallt fyrsta leik og oddaleik á heimavelli.


Í greinargerð með tillögunni sagði m.a.:

„Markmið tillögunnar er að bregðast við ákalli innan hreyfingarinnar um að fjölga leikjum og lengja keppnistímabilið. Með breytingunni er gert ráð fyrir að lið sem falla úr leik að lokinni riðlakeppni fái 3–4 leiki til viðbótar, sem lengir tímabilið um allt að einn mánuð.

Helstu áhrif breytingarinnar eru aukinn sýnileiki og bættir tekjumöguleikar, þar sem lið fá fleiri heimaleiki. Jafnframt eykst fyrirsjáanleiki fyrir þátttökulið í riðlakeppni, sem auðveldar skipulag og markaðssetningu leikja.

Reynsla síðustu ára sýnir að núverandi fyrirkomulag í 8-liða úrslitum hefur skilað takmörkuðum árangri hvað varðar áhuga og aðsókn. Oddaleikir hafa verið fáir og mæting á leiki svipuð og á hefðbundnum deildarleikjum. Af 20 einvígjum síðustu fimm tímabil hafa einungis fjögur einvígi farið í oddaleik í 8-liða úrslitum.

Með nýju fyrirkomulagi bætast við 3–4 leikir fyrir þau lið sem annars myndu falla snemma úr keppni. Öll átta liðin fá þrjá heimaleiki og þrjá útileiki í riðlakeppni, sem skapar tækifæri til að byggja upp stærri viðburði í kringum hvern leik. Fyrirsjáanleiki í leikjaskipulagi er meiri en í hefðbundinni úrslitakeppni, þar sem óvissa um framvindu einvígja er minni.

Breytingin getur lengt tímabil fjögurra liða um allt að þrjár vikur, miðað við að leikið sé á 4–6 daga fresti. Jafnframt eykst fjöldi heimaleikja hjá átta félögum, sem styður við aukna aðsókn, meiri stemningu og bætt rekstrarskilyrði.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -