- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjórði Daninn bætist í leikmannahóp Þórs

- Auglýsing -

Fjórði danski handknattleiksmaðurinn hefur samið við karlalið Þórs um að taka þátt í leikjum liðsins á næstu leiktíð. Nýjasta viðbótin frá Danmörku heitir William Skovsager. Hann er 25 ára gamall og hefur síðustu þrjú ár leikið með Kyndli í Færeyjum við góðan orðstír auk þess að koma að þjálfun hjá félaginu.

Skovsager er uppalinn í Skive á norðvesturhluta Jótlands. Viðlíka margir búa í Skive og á Akureyri.

Fyrir fáeinum vikum tilkynnti Þór að Bertram Simonsen frá Lemvig-Thyborøn, Mikkel Jensen og Oliver Christensen leikmenn Skanderborg AGF verði einnig hluti af vösku Þórsliði í Olísdeildinni á næstu leiktíð.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -