- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Allt fór í skrúfuna hjá HØJ Elite

- Auglýsing -

Draumur forráðamanna danska liðsins HØJ Elite breyttist í martröð í dag þegar liðið féll úr úrvalsdeildinni eftir tap fyrir KIF Kolding í oddaleik á heimavelli í umspili um sæti í deildinni, 33:30. Kolding, undir stjórn gamla landsliðsmannsins Anders Eggert, er þar með komið í hóp úrvalsdeildarliða á nýjan leik eftir árs fjarveru í næst efstu deild. Óvíst er hins vegar hvað tekur við hjá Sjálandsliðinu HØJ frá Ølstykke sem hafði háleitari markmið fyrir leiktíðina en að falla lóðrétt úr úrvalsdeildinni.

Sópuðu til sín leikmönnum

HØJ kom upp í úrvalsdeildina fyrir ári og sópaði til sín leikmönnum, m.a. Michael Damgaard frá Evrópumeisturum Magdeburg, með það að markmiði að komast í fremstu röð. Sænski landsliðsmaðurinn Hampus Wanne kom frá Barcelona og samið var við markvörð úr þýsku úrvalsdeildinni að ógleymdum Hans Lindberg fyrrverandi landsliðsmanni sem ætlaði að koma uppeldisfélagi sínu í fremstu röð.

Valinn maður í hverju rúmi

Vopnin snerust fljótlega í höndum leikmanna HØJ þótt valinn væri maður í hverju rúmi. Þjálfari HØJ var látinn taka pokann sinn í upphafi árs og hvorki gekk né rak að finna hæfan mann í hans stað. Þótt þjálfarinn hyrfi á braut var HØJ áfram í basli í neðri hluta úrvalsdeildar og rak loks lestina í fyrri hluta umspilsins sem varð til þess að HØJ mætti Kolding úr næst efstu deild í síðari hluta umspilsins þar sem spilaborgin hrundi til grunna. Óhætt er að segja að allt hafi farið í skrúfuna.

Þrátt fyrir illa gengi innan vallar í vetur var haldið áfram að semja við leikmenn fyrir næstu leiktíð. Sænska ungstirnið Axel Månsson samdi í vetur um að koma til Sjálandsliðsins í sumar. Hvort sá samningur fellur um sjálfan sig við tíðindi dagsins leiða næstu dagar í ljós.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -