Ómar Ingi Magnússon var í aðalhlutverki hjá SC Magdeburg þegar liðið vann HSV Hamburg, 41:28, á heimavelli í 30. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Ómar Ingi skoraði 11 mörk og geigaði ekki á skoti. Sjö markanna skoraði Selfyssingurinn úr vítaköstum. Einnig gaf hann þrjár stoðsendingar. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar þegar átta stig eru eftir í pottinum fyrir hvert af þremur efstu liðum deildarinnar. Næst á eftir Magdeburg eru Flensburg og Füchse Berlin. Staðan í deildinni er neðst í þessari grein.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg og gaf fjórar stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar auk þess að vinna boltann einu sinni í vörninni.
Einar Þorsteinn Ólafsson stóð að vanda í vörn HSV Hamburg. Auk þess skoraði hann eitt mark og gaf eina stoðsendingu.
Gummersbach treysti stöðu sína
Gummersbach festi sig í sessi í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar með öruggum sigri á HC Erlangen, 26:22, í PSD Bank Nürnberg ARENA að viðstöddum 8.200 áhorfendum. Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, er aðeins tveimur stigum á eftir Füchse Berlin. Síðarnefnda liðið hefur reyndar leikið einum leik færra.
Hvorki Andri Már Rúnarsson né Viggó Kristjánsson voru í leikmannahópi HC Erlangen. Báðir eru meiddir.
Teitur Örn Einarsson skoraði ekki fyrir Gummersbach. Elliði Snær Viðarsson lék ekki með liðinu að þessu sinni.
Kristjan Horzen var markahæstur hjá Gummersbach með níu mörk. Miro Schluroff var næstur með átta mörk. Yannik Bialowas og Maxsim Lochman skoruðu fjögur mörk hvor fyrir HC Erlangen.
Staðan í þýsku 1. deildinni:



