Fjórir þjálfarar þykja líklegastir í kapphlaupinu um starf landsliðsþjálfara Noregs í karlaflokki þegar Jonas Wille leggur niður vopnin í lok mánaðar. Stjórnendur norska handknattleikssambandsins sáu þann kost vænstan eftir Evrópumótið í upphafi árs að bjóða Wille ekki nýjan samning þegar núverandi samningur rennur út um mitt árið.
Tveir Norðmenn eru á meðal þeirra fjögurra þjálfara sem oftast eru nefndir til sögunnar, Børge Lund þjálfari Elverum og Kristian Kjelling þjálfari Drammen HK. Báðir eru þeir fyrrverandi landsliðsmenn auk þess að hafa náð afar góðum árangri með félagslið sín á undanförnum árum.
Svíi og Dani
Hinir tveir sem taldir eru að komi til greina eru Svíinn Magnus Andersson, sem nú stýrir FC Porto, og Daninn Stefan Madsen. Sá síðarnefndi er valtur í sessi hjá franska meistaraliðinu PSG eftir eins árs veru. Madsen náði framúrskarandi árangri hjá Aalborg Håndbold frá 2018 til 2024.
Líklegt er að norska handknattleikssambandið tilkynni um eftirmann Wille fljótlega eftir umspilsleiki HM sem fram fara á næstu dögum. Norska landsliðið mætir tyrkneska landsliðinu í umspilinu.


