Birgir Már Birgisson, hægri hornamaður FH, hefur skrifað undir tveggja ára samning við svissneska félagið GC Amicitia Zürich og gengur til liðs við það í sumar. Birgir Már hefur verið mikilvægur hlekkur í FH-liðinu allt frá því að hann gekk til liðs við það frá Víkingi sumarið 2018. Á þessum átta keppnistímabilum með FH lék Birgir Már 259 leiki í FH-treyjunni.
Birgir Már hefur tvívegis orðið deildarmeistari með FH, einu sinni bikarmeistari og einu sinni Íslandsmeistari. Þá var Birgir Már í 35 manna landsliðshópnum fyrir HM 2025.
GC Amicitia Zürich hafnaði í áttunda sæti A-deildarinnar í Sviss í vor og féll út fyrir Kadetten Schaffhausen í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Meðal annars hafa Gunnar Andrésson, Kári Kristján Kristjánsson og Ólafur Andrés Guðmundsson leikið með GC Amicitia Zürich.



