- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Katrín Tinna til liðs við HH Elite í Horsens

- Auglýsing -

Landsliðskonan Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite í Horsens á Austur-Jótlandi frá og með næsta keppnistímabili. Katrín Tinna, sem er 23 ára gömul, hefur leikið með ÍR frá ársbyrjun 2024 auk þess að vera mikilvægur hlekkur í landsliðinu hvar hún hefur leikið 36 landsleiki og skorað 40 mörk.

HH Elite hafnaði í sjöunda sæti af 14 liðum í dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni sem er að renna sitt skeið á enda. Einnig tók liðið þátt í forkeppni Evrópudeildar en féll úr leik eftir síðari umferð forkeppninnar eins og Valur og fleiri ágæt lið.

Katrín Tinna lék með Fylki og Stjörnunni áður en hún fór til Volda í Noregi sumarið 2021 og var hjá félaginu í tvö ár uns hún hélt til hálfs tímabils dvalar hjá Skara HF.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -