- Auglýsing -
Lovísa Thompson leikmaður nýkrýndra Íslandsmeistara Vals var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar kvenna sem lauk í Vestmannaeyjum í kvöld með sigri Vals í fjórða úrslitaleiknum við ÍBV.
Lovísa var burðarás Valsliðsins sem varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð í kvöld. Auk þess að vera afar öflug í úrslitakeppninni þá átti Lovísa afar gott keppnistímabil með Val sem varð m.a. til þess að hún endurheimti sæti sitt í landsliðinu.
- Auglýsing -



