- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísak hefur ákveðið að láta gott heita

- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Ísak Rafnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann segir frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum. Ísak hefur síðustu fjögur ár leikið með ÍBV og var m.a. Íslandsmeistari með liðinu fyrir þremur árum.

Ísak lék upp yngri flokka FH og lék árum saman með meistaraflokksliði félagsins og varð Íslandsmeistari með FH 2011 og bikarmeistari sjö árum síðar.

Keppnistímabilið 2018/2019 lék Ísak með Schwaz Handball Tirol í Austurríki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -