Íslenska landsliðið í handknattleik karla vann Egypta, 31:30, í fyrri vináttuleiknum í Kaíró í dag. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sigurmarkið mínútu fyrir leikslok og var það í eina skiptið sem Ísland var yfir í síðari hálfleik. Íslenska liðið skoraði fjögur síðustu mörk leiksins.
Staðan í hálfleik var jöfn, 14:14. Síðari vináttuleikurinn verður á föstudaginn og hefst klukkan 16.
Sigurinn er afar athyglisverður því Egyptar voru með sitt sterkasta lið í leiknum að einum markverði undanskildum. Eins og komið hefur fram vantaði nokkra sterka leikmenn í íslenska liðið en aðrir fylltu í skörðin með sóma.
Íslenska liðið var sterkara í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var góður og Viktor Gísli Hallgrímsson, sem var fyrirliði í fyrsta sinn með landsliðinu, var frábær í markinu. Hann varði 10 skot í fyrri hálfleik, þar af tvö vítaköst. Egyptum tókst að jafna metin fyrir hálfleik með tveimur síðustu mörkunum áður en leiktíminn var á enda, 14:14.
Egyptar komust strax yfir í síðari hálfleik með tveimur mörkum í röð. Eftir það voru þeir með yfirhöndina, mest fjögur mörk. Varnarleikur íslenska liðsins datt niður og Egyptar gengu á lagið. Ekki síst var línumaðurinn Ahmed Hesham varnarmönnum íslenska liðsins erfiður. Varnarleikurinn batnaði á lokakaflanum og það nægði til þess að snúa við taflinu þrátt fyrir egypska liðið fengi að komast upp með að tefja leikinn eins og því sýndist.
Jón Bjarni Ólafsson lék sinn fyrsta landsleik. Hann kom við sögu snemma í síðari hálfleik. Fyrsta landsliðsmarkið skoraði Jón Bjarni á 35. mínútu er hann minnkaði muninn í eitt mark, 18:17. Síðar bætti Jón Bjarni við marki og vann boltann á mikilvægum tíma undir lokin.
Haukur Þrastarson stýrði sóknarleik íslenska liðsins og fórst það vel úr hendi.
Viktor Gísli var verðskuldað valinn maður leiksins.
Tryggvi Þórisson, Einar Bragi Aðalsteinsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður komu ekkert við sögu af þeim sem voru á leikskýrslu hjá íslenska liðinu.
Elvar Ásgeirsson lék ekkert með vegna veikinda.
Dómgæslan var ekki góð. Ljóst er að dómararnir eru ekki vanir alþjóðlegum handknattleik í karlaflokki.
Mörk Íslands: Kristján Örn Kristjánsson, Donni, 6, Teitur Örn Einarsson 5, Þorsteinn Leó Gunnarsson 5, Haukur Þrastarson 4, Orri Freyr Þorkelsson 4/1, Arnar Freyr Arnarsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Reynir Þór Stefánsson 2, Bjarki Már Elísson 1/1.
Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 18/3, 38,2% – Ísak Steinsson 0.
Mörk Egyptalands: Ahmed Adel 6, Ahmed Hesham 6, Yahia Omar 6/5, Mohamed Emad 4, Mohab Abdelhak 4, Belal Massoud 1, Ahmed Nafea 1, Yehia Elderaa 1, Ali Zein 1.
Varin skot: Mohamed Aly 7, 26% – Essam Eltayar 3/1, 21%.



