- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Guðrún gengur til liðs við Víking

- Auglýsing -

Guðrún Maryam Rayadh hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Víkings. Hún kemur til félagsins frá ÍR.

Guðrún er uppalin hjá HK og lék með Kópavogsliðinu upp í meistaraflokk áður en hún söðlaði um og samdi við ÍR. Hluta nýliðins tímabils var Guðrún lánuð frá ÍR til Fjölnis.

Guðrún er fjölhæfur leikmaður, getur leyst allar stöður fyrir utan en er einnig öflugur varnarmaður, segir í tilkynningu Víkings sem býður Guðrúnu hjartanlega velkomna til félagsins.

Víkingur mun leika í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð eftir að samþykkt var á ársþingi HSÍ í síðustu viku að fjölga þátttökuliðum í deildinni úr átta í tíu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -