Frakkland og Noregur standa afar vel að vígi eftir fyrri leikina í umspili heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fór í kvöld. Norðmenn fara með 13 marka forskot til Tyrklands eftir 13 marka sigur á tyrkneska landsliðinu, 43:30, í Gjøvik. August Pedersen var markahæstur í norska landsliðinu með 10 mörk. Kristján Halldórsson var eftirlitsmaður EHF á leiknum.
Frakkar lögðu Tékka með 11 marka mun í nýrri keppnishöll í Brno, 37:26, og eiga heimaleikinn eftir. Stórslys þarf að henda Frakka svo þeir verði ekki með á HM í Þýskalandi í janúar.
Grikkir unnu óvæntan sigur á hollenska landsliðinu, 29:27, að viðstöddum 900 áhorfendum í Chalkida í Grikklandi.
Austurríkismenn eiga á brattann að sækja eftir eins marks tap fyrir Pólverjum, 26:25, í Raiffeisen Sportpark í Graz.
Sviss lagði Ítalíu, 32:29, í Zürich eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 17:16. Síðari viðureignin verður í Faenza á sunnudaginn.
Úrslit leikja umspilsins í kvöld:
Austurríki – Pólland 25:26 (13:15).
Noregur – Tyrkland 43:30 (23:20).
Grikkland – Holland 29:27 (14:12).
Sviss – Ítalía 32:29 (16:17).
Tékkland – Frakkland 26:37 (14:20).
Leikir á morgun, fimmtudag:
Svartfjallaland – Slóvenía.
Serbía – Ungverjaland.
Slóvakía – N-Makedónía.
Bosnía – Færeyjar.
Spánn – Ísrael.
- Leikir síðari umferðar umspilsins fara fram á laugardag og sunnudag.


