Carlos Martin Santos og handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem þjálfari meistaraflokks karla. Er þetta gert að ósk Carlos, eftir því sem segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í kvöld. Ekki kemur fram í tilkynningunni hver taki við þjálfun Selfossliðsins sem kom upp í Olísdeildina í fyrra og hélt sæti sínu við lok leiktíðar.
Í lok mars var Carlos orðaður við þjálfarastarfið hjá HK Aranäs sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð.
Selfoss í þjálfaraleit – Santos á leið til Svíþjóðar
Carlos kom til félagsins árið 2023 sem aðstoðarþjálfari Þóris Ólafssonar. Hann tók síðan við sem aðalþjálfari liðsins árið 2024 og hefur stýrt liðinu síðustu tvö tímabil. Á fyrsta tímabili hans náði liðið þeim áfanga að tryggja sér sæti í Olísdeildinni eftir ævintýralegt umspil við Víking og Gróttu. Liðið endaði í 10. sæti Olísdeildarinnar í vetur og tryggði sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu. Áður en Carlos kom til liðs við Selfoss hafði hann þjálfað um árabil hjá Herði á Ísafirði.



