Landsliðskonan í handknattleik, Elín Klara Þorkelsdóttir, er í úrvalsliði sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Elín Klara fékk 84% atkvæða í valinu á besta leikstjórnanda deildarinnar í kjöri Handbollsligan Dam.
Elín Klara gekk til liðs við IK Sävehof fyrir ári og hefur sannarlega slegið í gegn í sænsku úrvalsdeildinni. Hún á einn stærsta þátt í að IK Sävehof varð deildarmeistari í vor og er nú komið alla leið í úrslit úrslitakeppninnar. Elín Klara var á meðal markahæstu og stoðsendingahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar og var margoft valin í lið mánaðarins á leiktíðinni.
Úrslitarimma IK Sävehof og Skara HF um sænska meistaratitilinn hefst á mánudaginn. Skara HF varð meistari á síðasta ári.
Hér fyrir neðan er myndskeið með nokkrum tilþrifum Elínar Klöru í leikjum tímabilsins.



