- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Reyndur hornamaður hefur samið við Víking

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Þorgeir Bjarka Davíðsson um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili í Olísdeild karla. Þorgeir kemur til félagsins frá uppeldisfélagi sínu Gróttu sem hann hefur leikið með síðustu tvö ár eftir að hafa tekið sér frí frá handbolta leiktíðina 2023/2024.


Þorgeir Bjarki er uppalinn í Gróttu en fór árið 2016 yfir í Fram. Frá Fram lá leið Þorgeirs Bjarka yfir í HK og þaðan til Vals þar sem hann varð Íslands- og bikarmeistari 2021 og 2022.

„Þorgeir er örvhent skytta og hornamaður sem mun styrkja leikmannahóp Víkings verulega fyrir komandi verkefni í efstu deild. Með reynslu sinni, fjölhæfni og leikskilningi mun hann gefa liðinu aukna breidd og mikilvæga reynslu inn í krefjandi tímabil í Olís deildinni,“ segir m.a. í tilkynningu Víkings.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -