- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Davíð tekur við af Grétari Áka – Björgvin verður til halds og trausts

- Auglýsing -

Davíð Georgsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR til næstu tveggja ára. Hann tekur við af Grétari Áka Andersen sem lét af störfum á dögunum. Davíð til halds og trausts verður hinn vel þekkti handknattleiksmaður Björgvin Þór Hólmgeirsson.

Davíð er vel þekktur innan ÍR enda var hann fyrirliði meistaraflokks karla í áraraðir og er einn leikjahæsti leikmaður félagsins. Hann hefur undanfarin ár þjálfað í yngri flokkum félagsins.


Hvorki Davíð né Björgvin Þór hafa áður verið þjálfarar í meistaraflokki.

„Stjórn handknattleiksdeildar bindur miklar vonir við ráðningu Davíðs og Björgvins enda heimamenn sem blæða bláu og hvítu,“ segir í tilkynningu ÍR.

ÍR hafnaði í fjórða sæti Olísdeildar kvenna í vetur og féll út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir viðureignir við Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -