- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Annar góður sigur á Egyptum í Kaíró

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið vann það egypska öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla í Kaíró í dag, 30:27, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:11. Íslenska landsliðið var með yfirhöndina frá upphafi til enda og náði mest sex marka forskoti, 25:19, þegar tíu mínútur voru til leiksloka.


Allir leikmenn íslenska hópsins í Kaíró tóku þátt í viðureigninni í dag að fyrirliðanum Viktori Gísla Hallgrímssyni undanskildum. Tveir yngri markverðir, Ísak Steinsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson, skiptu leiknum bróðurlega á milli sín. Sá síðarnefndi lék sinn fyrsta A-landsleik og klæddist búningi landsliðsins í fyrsta sinn í þrjú ár eða frá því hann var í bronsliði Íslands á HM 21 árs landsliða.

Tryggvi Þórisson lék einnig sinn fyrsta A-landsleik og var í fyrsta sinn í búningi landsliðsins frá HM 21 árs landsliða, sælla minninga, í Berlín.

Talsverðar hrókeringar

Miklar hrókeringar voru á íslenska landsliðinu í þessum leik, jafnt í vörn sem sókn, enda kærkomið tækifæri fyrir landsliðsþjálfarann að sjá marga lítt reynda leikmenn og eins þá sem staðið hafa í skugga annarra.

Sem fyrr segir var íslenska liðið með yfirhöndina í leiknum frá byrjun til enda. Egyptum var haldið í hæfilegri fjarlægð.

Laust í reipunum

Xavier Pascual landsliðsþjálfari Egypta leyfði sér einnig að gefa fleiri og óreyndari leikmönnum tækifæri. Fyrir vikið var leikur liðsins æði laus í reipunum og agalaus, ekki síst í síðari hálfleik. Sá Pascual sig knúinn til að tala með tveimur hrútshornum við leikmenn sína um miðjan síðari hálfleik án þess að hafa mikið upp úr krafsinu.

Tvennir sigurleikir og margir leikmenn sem fengu gott tækifæri til þess að láta ljós sitt skína hjá íslenska liðinu. Ferð og leikir sem vafalaust eiga eftir að skilja talsvert eftir sig þegar fram líða stundir.


Mörk Íslands: Arnar Freyr Arnarsson 4, Reynir Þór Stefánsson 4, Þorsteinn Leó Gunnarsson 4, Bjarki Már Elísson 3/2, Kristján Örn Kristjánsson Donni 3, Orri Freyr Þorkelsson 3, Teitur Örn Einarsson 3, Elvar Ásgeirsson 2, Óðinn Þór Ríkharðsson 2, Einar Þorsteinn Ólafsson 1, Haukur Þrastarson 1.
Varin skot: Ísak Stefánsson 10, 47,6% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 6/2, 27,2%.

Mörk Egyptalands: Mohamed Emad 5/3, Mohsen Ramadan 4, Yahia Omar 3, Belal Massoud 3, Mohab Abdelhak 3, Ahmed Toghyan 2, Abdelrahman Abdou 2, Seif El-Deraa 2, Ahmed Khairy 1, Mohamed Moamen 1, Yasser Abdelwahed 1, Nabil Sherif 1.
Varin skot: Abdelrahman Homaied 5, 23% – Essam Eltayar 3, 19%.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -