Þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, tapaði með átta marka mun fyrir Evrópumeisturum Danmerkur, 36:28, í vináttulandsleik í Royal Arena í Kaupmannahöfn í kvöld. Danir, sem eru kampakátir með úrslitin, höfðu átta marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að baki, 21:13.
Eins og mörgum er máske í fersku minni þá mættust Danir og Þjóðverjar í úrslitaleik Evrópumótsins 1. febrúar.
Lið þjóðanna mætast aftur í Lanxess Arena í Köln síðdegis á sunnudaginn.
Mathias Gidsel var markahæstur í danska landsliðinu með 10 mörk. Emil Jakobsen var næstur með átta mörk. Nafni hans Nielsen fór á kostum í markinu og varði 19 skot.
Miro Schluroff, Juri Knorr, Lukas Zerbe og Renars Uscins skoruðu fjögur mörk hver fyrir þýska liðið sem tapaði leiknum á slakri frammistöðu í fyrri hálfleik þegar danska landsliðið keyrði upp hraðann.



