Handknattleiksmaðurinn Ihor Kopyshynskyi er án samnings eftir að Afturelding sagði upp samningi sínum við hann í lok leiktíðar. Frá þessu er greint á Handkastinu. Ihor, sem er 35 ára gamall fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir ári, segist um þessar mundir ekki vita hvað taki við hjá sér á handboltavellinum. Alltént hefur enn sem komið er ekkert félag borið víur sínar í hann.
Ihor hefur leikið á Íslandi í nærri áratug og ævinlega verið á meðal markahæstu leikmanna sinna liða. Hann kom til liðs við Akureyri handboltafélag en færði sig yfir í Þór þegar upp úr slitnaði í samstarfi Akureyrarfélaganna. Þar á eftir fluttist Ihor suður og lék um skeið með Haukum en gekk til liðs við Aftureldingu síðsumars 2022. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Aftureldingu á síðasta ári en upp úr samstarfinu slitnaði áður en kom að því að uppfylla síðara árið.
„Staðan er sú að ég hreinlega veit ekki hvort ég spili handbolta á næsta tímabili. Ég vil svo sannarlega spila áfram. Ég er ekki tilbúinn að hætta,“ segir Ihor við Handkastið.


