- Auglýsing -
Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru síður en svo komnir í sumarfrí frá dómgæslu. Þeir eru komnir til Veszprém í Ungverjalandi þar sem þeirra bíður það vandasama verk að dæma síðari viðureign grannþjóðanna, Ungverja og Serba, í umspili heimsmeistaramóts karla. Leikurinn hefst klukkan 15.30 fyrir þá sem tök hafa á að fylgjast með í viðtækjum.
Serbar unnu fyrri viðureignina, 31:29, eftir að hafa misst niður gott forskot sem þeir höfðu fram eftir leiknum.
Samanlagður sigurvegari í leikjunum tveimur tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í upphafi næsta árs. Tapliðið situr eftir með sárt ennið.
Slóveninn Janko Pozeznik verður eftirlitsmaður EHF á leiknum.
- Auglýsing -



